Sé að það er einhverjum sem vantar að fá að vita heimilisfangið okkar Símonar
Og hér kemur það:
Vestermøllevej 8a, 8380 Trige, Danmark
Rosalega gaman að vita að ótrúlegasta fólk kíkir hingað á bloggið og skrifar í gestabókina/komment
(Til Ingibjargar) ..við stefnum á að prufa Dönsk jól þetta árið, Símon notar stærð 134 og verður örugglega rosalega glaður að fá sendingu frá ykkur föðurfjölskyldunni á Íslandi. Ég hef ekki heimilisfangið ykkar eða símanúmer þannig að ég verð bara að setja upplýsingarnar hingað á bloggið...og vona að þú kíkir hingað inn aftur til að lesa svarið.
Skildu endilega eftir komment ef þú hefur séð þetta.
--
En fréttir fréttir. Ég hef fullt af fréttum...þó aðallega tvær.
Fjölskyldan var að stækka. Og þá ekki bara í centimetrum, heldur í fjölda einstaklinga. Ég var ekki ólétt í leyni, og heldur ekki hann Bledi, Heldur vorum við að fá agalega sætann hvolp á heimilið, ljósann Labrador/Golden retriver konuhvolp sem hefur verið skírður af séra Símoni og fengið nafnið Bella.
Hún er algjör gullmoli, og mér líður eins og ég sé móðir í annað sinn. Bara aðeins meiri kúkur á gólfinu heldur en eftir seinasta barn.
--
Frétt númer tvö er nú heldur ekki af verri endanum..
En við mæðginin fengum heimboð í lok janúar! jibbí. Pabbi var svo ótrúlega góður að bjóða okkur í ferðalag til Íslands á Þorrablót. Betri gjöf væri svo sannarlega ekki hægt að gefa okkur (þó aðallega mér held ég..) þessa dagana, enda mikill söknuður hvað varðar aðal-vini og fjölskyldu. Ég loove aðal-vini og fjölskyldu, og skil ekkert í þeim að fara ekki meira í ferðalög til Århus til að leika við mig.
Það verður semsagt skotist landshornanna á milli eins og vanalega svo við Lemmi getum hitt alla familíuna, og svo notið þess að tjútta með kökuspaðann á Þorrablóti með stelpunum og syngja kvartett inní bíl í hléinu. Hold da op, það verður stuð.
Ég mæli með því að allir flytji til Stykkishólms, það myndi gera Íslandsferðirnar mínar svo miklu einfaldari.
--
En nóg komið að skriffinsku þetta skiptið. Væntanlegar myndir af nýja barninu á heimilinu.
Og að lokum langar mig að þakka rosalega vel fyrir allar afmæliskveðjurnar, hvort sem þær voru símleiðis, póst-leiðis, blogg-leiðis, myspace-leiðis eða face to face-leiðis. Ég var agalega glöð með daginn.
Íris..sem fer til íslands á næsta ári